26.04.1941
Neðri deild: 45. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 562 í B-deild Alþingistíðinda. (1209)

62. mál, Búnaðarbanki Íslands

Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson) :

Landbn. flytur hér 2 brtt. Önnur er í samræmi við þær umr., sem fóru fram við 2. umr. þessa máls. Sú till. er um að fella niður ákvæði um, að vextir skuli vera 6%. Þar sem engum opinberum stuðningi er heitið í þessu frv. um vaxtaframlög frá ríkissjóði, verða vextirnir því að vera í samræmi við þá vexti, sem lánadeildin verður að borga af því fé, sem hún fær frá ríkissjóði. Má gera ráð fyrir, að það fari ekki fram úr 6%. Hin brtt., sem n. flytur, er á þá leið, að auk bankastjóra skipi bankaráð bókara og gjaldkera.