05.05.1941
Sameinað þing: 12. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 121 í B-deild Alþingistíðinda. (182)

1. mál, fjárlög

Skúli Guðmundsson:

Ég vil aðeins þakka hæstv. atvmrh. fyrir þær upplýsingar, er hann hefur gefið. Það kom fram í ræðu hans, að líklega yrði ekki hafizt handa strax, og ég bjóst reyndar ekki við því. Ég vænti þess, að hann og hv. fjvn. fallist á till. mína um, að féð verði geymt, þar til Alþ. hefur sett l. um hafnargerð á þessum slóðum.