02.05.1941
Efri deild: 49. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 880 í B-deild Alþingistíðinda. (2143)

44. mál, húsmæðrafræðsla í sveitum

Árni Jónsson:

Ég ætla aðeins að gera grein fyrir atkv. mínu.

Ég hef skrifað undir nál. á þskj. 259 með fyrirvara, en þar sem ég lít svo á, að með ummælum hæstv. forsrh., sem hann viðhafði hér í ræðu sinni við 2. umr., sé fullnægt því skilyrði, sem sett er af minni hálfu og hv. 2. landsk. fyrir fylgi okkar við frv., þá mun ég greiða því atkv.