04.06.1941
Efri deild: 71. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 994 í B-deild Alþingistíðinda. (2573)

70. mál, Háskóli Íslands

Árni Jónsson:

Ég vil aðeins segja örfá orð út af dagskránni. Eins og hún ber með sér, er 1. málið um breyt. á 1. um háskólann. Þetta mál hefur komið á dagskrá áður, án þess að koma til umr. Ég vildi þess vegna spyrja hæstv. forseta, hvers vegna ekki er byrjað á þessu máli nú, og hvort ekki megi ganga út frá því, þó að það verði ekki tekið fyrir fyrst, að það fái þó umr. á þessum fundi.