14.06.1941
Neðri deild: 80. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 1038 í B-deild Alþingistíðinda. (2633)
157. mál, stríðstryggingafélag skipshafna
Frsm. (Sigurður E. Hlíðar) :
Þegar þetta mál var til 2. umr., kom fram örlítil brtt. á þskj. 747. N. hefur ekki haft tíma til að ræða þessa till., en hins vegar hafa nm. borið sig saman um þessa breyt., og mér er óhætt að segja, að þeir eru allir á eitt sáttir, að till. sé frekar til bóta, og leggja með því, að hún verði samþ.