10.06.1941
Neðri deild: 75. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 57 í C-deild Alþingistíðinda. (2967)

57. mál, bygging sjómannaskóla

Atvmrh. (Ólafur Thors) :

Út af orðum, sem fallið hafa við afgreiðslu málsins, vil ég taka fram, að ég mun fylgja því fram með kappi, að það verði bæði vel og réttilega undirbúið fyrir næsta Alþingi, þótt þetta frv. verði ekki að l., heldur afgreitt með dagskránni, sem ég sé nú, að verður samþ. Vona ég, að það verði málinu sízt til tafar og segi já.