12.03.1941
Neðri deild: 16. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 129 í C-deild Alþingistíðinda. (3148)

53. mál, fiskveiðasjóðsgjald

Flm. (Pétur Ottesen) :

Ég vil út af þessum orðum hv. 5. þm. Reykv. taka fram, að mér var ekki kunnugt um, að hann væri að vinna að þessu máli fyrr en kvöldið, sem ég lagði fram mitt frv., en hafi hann hreyft þessu máli á flakksfundi, þá hef ég ekki verið þar viðstaddur.

Annars vil ég segja, að mér virðist koma fram dálítil afbrýðisemi hjá hv. þm. í sambandi við þetta mál, slíkt er með öllu ástæðulaust, því mér virðist ekki nema gott að komi úr sem flestum áttum áhugi fyrir málinu og till. til umbóta.