15.05.1941
Neðri deild: 60. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 445 í B-deild Alþingistíðinda. (906)

21. mál, húsaleiga

Frsm. (Garðar Þorsteinsson) :

Samkv. ósk hæstv. félmrh. er lagt til, að bætt verði inn í 1. gr. ákvæði um það, að til þess að húseigandi megi hækka húsaleigu samkv. vísitölu kauplagsnefndar um viðhaldskostnað, þá verði leigumálinn að staðfestast af húsaleigunefnd.

Ég gat þess við 2. umr., að það hefði gleymzt að setja inn í frv. ákvæði um, frá hvaða tíma vísitalan skyldi gilda, en n. hefur orðið sammála um að leggja til, að hún væri látin gilda frá þeim flutningsdegi, sem var í gær.

Þriðja brtt. er um það að fella þessi l. inn í fyrri l.

Vona ég, að d. geti sætt sig við þetta.