17.06.1941
Sameinað þing: 20. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 1287 í B-deild Alþingistíðinda. (97)

Kosning ríkisstjóra

Forseti (HG) :

Hinn kjörni ríkisstjóri hefur nú tekið við starfi sínu. Ég vil óska þess, að honum megi auðnast að rækja svo ríkisstjórastarfið, að landi og þjóð verði til heilla.

Hæstvirtur ríkisstjóri ávarpar nú þingheim.

[Ríkisstjóri gekk því næst til ræðustóls og flutti eftirfarandi ávarp til þings og þjóðar. Ávarpinu var, ásamt allri athöfninni, útvarpað.]