03.11.1941
Efri deild: 8. fundur, 58. löggjafarþing.
Sjá dálk 134 í B-deild Alþingistíðinda. (310)

8. mál, lántaka fyrir síldarverksmiðjur ríkisins

Frsm. (Magnús Jónsson) :

Ég vil leyfa mér að fara fram á það við hæstv. forseta, að hann taki þetta mál út af dagskrá nú. Það eru nokkrar upplýsingar, sem æskilegt væri að fá í málinu, en einkum fer ég þó fram á þetta vegna þess, að líklega þarf að bera fram brtt. við frv., og þá væri hentugra að gera það áður en málið er afgr. héðan úr d., heldur en hætta á, að málið þurfi að fara á milli deilda.

Forseti tók málið af dagskrá.