23.05.1942
Sameinað þing: 22. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 973 í B-deild Alþingistíðinda. (2546)

Þingfrestun og þingrof

Forseti (GSv):

Samkv. þessari tilkynningu má telja, að þessi fundur sameinaðs Alþingis verði að þessu sinni hinn síðasti. En eftir venju, þegar þingi lýkur þannig með frestun, verður ekki gefið neitt sérstakt yfirlit yfir þingstörfin. En ég vil nota tækifærið til að þakka þingmönnum fyrir gott samstarf við mig sem forseta og árna þeim allrar farsældar í sumar, bæði heima og heiman.