20.08.1942
Sameinað þing: 6. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 139 í D-deild Alþingistíðinda. (1161)

12. mál, samningar við verkalýðssamtökin til að tryggja nauðsynlegustu framleiðslu þjóðarinnar

Forseti (GSv) :

Þess skal getið, að 4. og 5. dagskrármál eru sama efnis og það, sem nú hefur verið tekið til umr. Það er mælzt til þess, að umr. fari fram um öll þessi mál í einu, ef unnt er, ef það gæti stytt umræðutímann, og skal bent á, að örlögum 3. málsins munu hin tvö að mestu sæta.