01.09.1942
Sameinað þing: 11. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 65 í D-deild Alþingistíðinda. (969)

8. mál, úthlutun bifreiða

Forseti (GSv) :

Ég vil leyfa mér að beina því til hv. þm. að tala sem hóflegast um menn og málefni, sem hafa verið til meðferðar á fundum í nefndum þingsins, en ekki gerzt fyrir allra eyrum og sjónum. Einnig vil ég árétta, sem ég tók í upphafi fram, að málalengingar mundu ekki henta fyrir afgreiðslu þessa máls.