10.02.1943
Efri deild: 52. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 971 í B-deild Alþingistíðinda. (1617)

131. mál, útsvarsinnheimta 1943

Frsm. (Pétur Magnússon):

Herra forseti. Það þýðir ekki fyrir okkur hv. þm. Barð. að fara í neinn mannjöfnuð hér. Ég veit ekki, hvort honum hefur tekizt svo illa að gera till. sína skiljanlega eða hvort ég er svona skilningssljór. Ég hef lesið þessa brtt., en ég játa að hafa misskilið, hvað fyrir honum vakir með henni. Hann hreyfði einnig öðrum aths. við þennan lið málsins við 2, umr. (GJ: Nei). Jæja, það er þá víst allt saman misskilningur hjá mér. Annars tel ég þetta svo þýðingarlítið atriði, að ég tel enga ástæðu til þess að bera fram sérstaka brtt. við það.