19.12.1942
Neðri deild: 23. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 80 í B-deild Alþingistíðinda. (225)
85. mál, dómnefnd í verðlagsmálum
Atvmrh. (Vilhjálmur Þór):
Herra forseti. — Að gefnu tilefni vil ég sem landbúnaðarráðh. lýsa yfir því, að ég mun ekki samþykkja hækkun á núverandi mjólkurverði eða kjöti til loka febrúar n.k., ef þann tíma verður í gildi auglýsing samkvæmt því frv., sem nú liggur fyrir hér í d., og ef ekki verða grunnkaupshækkanir á þessum tíma.