18.03.1943
Neðri deild: 78. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1313 í B-deild Alþingistíðinda. (2310)

154. mál, Kennaraskóli Íslands

Frsm. (Páll Þorsteinsson):

Herra forseti. — Nú hafa komið fram tvær brtt. við frv. til l. um Kennaraskóla Íslands, sem fyrst hefur verið útbýtt nú á þessum fundi, svo að menntmn., sem flytur þetta frv. og hefur fjallað um það, hefur ekki haft tök á að athuga þessar brtt. til nokkurrar hlítar. Ég vil því fyrir hönd menntmn. bera fram þau tilmæli til hæstv. forseta, að málið verði nú tekið af dagskrá og afgreiðslu þess frestað þar til á næsta fundi í þessari hv. deild.