19.12.1942
Efri deild: 20. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 155 í C-deild Alþingistíðinda. (2698)

66. mál, skólasetur á Reykhólum

Bjarni Benediktsson:

Það var aðeins út af því, í hvaða n. þetta mál ætti að fara. Mér sýnist ekki nema sjálfsagt, að það fari til menntmn., þar sem hér er um skóla að ræða.

Ég held, að um þetta verði ekki deilt. Þetta er fyrst og fremst undirbúningur skólamáls, athuganir á fyrirkomulagi hans og starfsháttum.

Ég tek því undir með flm. um það, að málinu sé vísað til menntmn.