18.11.1942
Sameinað þing: 1. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 43 í B-deild Alþingistíðinda. (41)

Rannsókn kjörbréfa

Aldursforseti (IngP):

Mér skilst, að ef hér á að vera um rannsókn að ræða, þurfi það að koma fram skjallega í þinginu, svo að það sé meira en góðlátleg bending. Eftir allar þessar umr. virðist það komið í ljós, að menn vilji almennt, að þessi rannsókn fari fram. Ég óska því eftir, að meiri hl. kjörbréfadeildar komi fram með till. sína skrifl. Auk þess er það svo, eins og hv. þm. S.-Þ. hefur tekið fram, að þeir, sem eru í minni hluta og fresta vilja að taka kosninguna gilda, greiða atkv. með því, að rannsókn fari fram.