20.11.1942
Neðri deild: 2. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 57 í B-deild Alþingistíðinda. (87)

Kosning fastanefnda

Forseti (JJós):

Dagskrá þessa fundar varðar kosningu í fastanefndir samkv. 16. gr. þingskapa. En í hinni sömu gr. er ákveðið, að á 2. fundi Sþ. skuli kosnar fastanefndir og þær taldar þar. Nú hefur þessum kosningum í Sþ. verið frestað, en þingsköp ætlast sýnilega til, að sú athöfn, sem um ræðir í Sþ., fari fram, áður en kosið er í fastanefndir í deildum. Virðist því af þeim ástæðum sjálfgert að fresta kosningum í fastan. í þessari hv. d., þar til lögboðnar nefndarkosningar hafa fram farið í Sþ. Kosningum þessum er því frestað.