26.10.1943
Neðri deild: 38. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 668 í B-deild Alþingistíðinda. (1070)

88. mál, lendingarbætur í Vogum

Frsm. (Jóhann Jósefsson) :

Sjútvn. hefur fengið þetta mál til meðferðar, og hefur það sætt líkri meðferð og önnur slík mál. Leitað hefur verið m. a. álits og umsagnar vitamálastjóra um það, eins og lög mæla fyrir, og mælir hann með því. Niðurstaðan hefur og orðið sú, að n. mælir með því, að það verði samþ. óbreytt.