28.10.1943
Efri deild: 41. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 703 í B-deild Alþingistíðinda. (1202)

126. mál, lóðir og lönd Reykjavíkurkaupstaðar

Flm. (Bjarni Benediktsson) :

Frv. þetta er flutt að tilhlutun bæjarráðs Reykjavíkur, sem var sammála um, að núverandi fyrirkomulag á ákvörðun leigu og söluverðs lóða bæjarins væri óheppilegt og umsvifamikið. En annars sé ég ekki ástæðu til að fjölyrða neitt um þetta og vísa til grg., en vil leyfa mér að gera það að till. minni, að frv. verði vísað til allshn.