10.12.1943
Efri deild: 63. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 780 í B-deild Alþingistíðinda. (1462)

157. mál, happdrætti

Forseti (StgrA):

Það er nú sýnilegt, að hv. þm. S.-Þ. hefur ekki eins mikinn áhuga á, að 5. og 6. málið hér á dagskránni fái afgreiðslu eins og hann lét í fyrstu. Nú hefur mér borizt brtt. frá þessum hv. þm. við 1. gr. frv. [sjá þskj. 630].

Ég vil leita tvöfaldra afbrigða fyrir þessari brtt., þar sem hún er bæði skrifleg og of seint fram komin.