10.11.1943
Neðri deild: 43. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 43 í C-deild Alþingistíðinda. (1879)

70. mál, kvikmyndasýningar

Forseti (JörB) :

Hv. 8. þm. Reykv. (SigfS) beindi þeirri fyrirspurn til mín, hvort ég teldi, að brtt. á þskj. 286 mundu geta átt við frv., sem fyrir liggur, og hvort það yrði sama málið, eftir að þær hefðu verið samþ. Vera kynni, að mér hefði sézt yfir þetta, þegar ég gerðist flm.till., en nokkrar líkur virtust til, að mér hefði ekki sézt yfir að athuga það áður, — enda var svo. Þessar till. gera að vísu frv. víðtækara, ef þær ná samþykki, fellur þá sumt úr því niður, en annað breytist mjög og helzt þannig í frv. Ég hygg, að oft yrði torvelt að bera fram brtt. við mál, ef ekki mætti leggja til breytinga á þennan hátt. Ég hirði ekki að bera saman efnisatriði frv. og brtt., því að það er hverjum þm. ljóst.