29.11.1943
Neðri deild: 55. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 633 í C-deild Alþingistíðinda. (3096)

42. mál, dýrtíðarráðstafanir

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Ég vil leyfa mér að beina þeirri fyrirspurn til forseta, hvort einhver sérstök ástæða sé þess valdandi, að frv. til l. um dýrtíðarráðstafanir hefur ekki verið sett á dagskrá til 3. umr., eða hvort ósk hafi komið fram um að fresta því?