15.10.1943
Sameinað þing: 19. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 351 í D-deild Alþingistíðinda. (3502)

50. mál, gagnfræðanám

Dómsmrh. (Einar Arnórsson) :

Mér skilst, að það skipti ekki miklu máli, hvort dagskráin eða till. er samþ., því að að sjálfsögðu kemur hvort tveggja fyrir augu mþn. Ef þáltill. verður samþykkt, verður hún send mþn. á sama hátt og allshn. ætlast til, að mþn. taki málið til athugunar.