16.12.1943
Neðri deild: 65. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 503 í B-deild Alþingistíðinda. (648)

24. mál, lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins

Páll Zóphóníasson:

Þar sem það er upplýst, að ekki hefur verið tími til að athuga þau ákvæði, sem hér um ræðir, og þar sem enn fremur liggja fyrir upplýsingar um, að ekkert liggi á að samþykkja þessi l. núna og að það megi gera á þeim hvaða breyt., sem er, á næsta þingi, því að þau komi ekki til framkvæmda fyrr en á miðju ári 1944, vil ég láta athuga þau nánar og segi já.