14.10.1943
Neðri deild: 32. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 589 í B-deild Alþingistíðinda. (840)
55. mál, happdrætti Laugarneskirkju
Frsm. (Skúli Guðmundsson):
Fjhn. hefur haft frv. þetta til athugunar, og er meiri hluti n., eða 4 nm. af 5, sammála um að mæla með því óbreyttu. Hv. þm. Siglf. er því hins vegar mótfallinn.