04.03.1944
Neðri deild: 25. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 921 í B-deild Alþingistíðinda. (1439)

62. mál, dýrtíðarráðstafanir

Emil Jónsson:

Það eru aðeins nokkur orð til þess að skýra frá því, af hverju ég sem einn í landbn. hef ekki tekið þátt í flutningi þessa máls og það þess vegna er flutt af meiri hl. n. eingöngu.

Þegar niðurstöður sex manna n. voru komnar, þá fannst bæði mér og öðrum, að þær niðurstöður væru í mörgum atriðum hæpnar og óljósar, svo að ekki sé meira sagt, og það í fleiri atriðum en þeim, sem hér er lagt til, að leiðrétt verði. Ég skoða það því þannig, ef farið væri að taka þetta mál út úr, að það mundi seinka fyrir því, að heildarlagfæring fengist á því, sem l. fjalla um. Af þessum ástæðum hef ég ekki viljað taka þátt í flutningi málsins.