24.11.1944
Neðri deild: 81. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 992 í B-deild Alþingistíðinda. (1810)

170. mál, hafnargerð á Skagaströnd

Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson):

Herra forseti. Sjútvn. sendi þetta mál til vitamálastjóra og fékk meðmæli hans með, að frv. yrði samþ. óbreytt. Annað er í rauninni ekki um þetta að segja af hálfu n. Upphæðirnar eru að vísu nokkuð hækkaðar, en einungis í réttum hlutföllum og eftir því sem nauðsynlegt þótti.