12.01.1945
Efri deild: 101. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1345 í B-deild Alþingistíðinda. (3390)

240. mál, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins

Frsm. (Haraldur Guðmundsson):

Ég hef getið um það áður, að ég geri ráð fyrir að bera fram brtt. við frv., áður en það er afgr. úr þessari d. og vonaði, að hægt yrði að halda fund í n., áður en gengið er frá till. Nú hefur ekki verið hægt að halda fund í n. Ég sé ekki ástæðu til annars en málið gangi til 3. umr. nú, en mælist til þess, að málið verði ekki tekið á dagskrá aftur, fyrr en hægt hefur verið að halda fund í n. og athuga það.