09.03.1944
Efri deild: 25. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 253 í B-deild Alþingistíðinda. (384)

40. mál, nýbygging fiskiskipa

Hermann Jónasson:

Ég er ekki ánægður með frv. eins og það er, en ég vil hins vegar ekki greiða atkv. með þessari brtt., vegna þess að það mun setja frv. í hættu, en lögð er áherzla á að fá það samþ. sem heimild til þess að ráðstafa þessum 5 millj. kr. Þess vegna segi ég nei við þessari brtt.

Aðrar brtt. á þskj. 178 teknar aftur.

1. gr. samþ. með 9:2 atkv.

2.–13. gr. samþ. með 9 shlj. atkv.

Fyrirsögn samþ. án atkvgr.

Frv. vísað til 3. umr. með 9 shlj. atkv.