09.03.1944
Neðri deild: 30. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 259 í B-deild Alþingistíðinda. (397)

40. mál, nýbygging fiskiskipa

Forseti (JörB):

Sá skilningur hefur frá fyrstu tíð verið lagður í þessi afbrigði, að hvort sem um væri að ræða málið í heild eða einstök málsatriði, þá gilti hið sama um hvort tveggja. Nú er þetta mál, sem hér liggur fyrir, stjórnarfrv. að upphafinu til, og síðan flytur hæstv. ráðh. brtt. við það, og hygg ég þá, að að öllu leyti sé fullnægt ákvæðum þingskapa um þetta efni.