10.02.1944
Sameinað þing: 14. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 159 í D-deild Alþingistíðinda. (4252)
29. mál, Suðurlandsbraut um Krýsuvík
Fjmrh. (Björn Ólafsson):
Ég skal ekki blanda mér inn í umr. þessa máls, hvort leggja skuli þennan veg eða ekki. En þar sem þessi till. fer fram á, að stj. verði veitt heimild til útgjalda úr ríkissjóði upp á 2 millj. kr., þá vildi ég spyrja hv. flm., hvernig þeir hugsi sér, að þessi upphæð verði útveguð, þar eð ekki lítur út fyrir tekjuafgang á þessu ári.