07.03.1944
Sameinað þing: 27. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 185 í D-deild Alþingistíðinda. (4279)

29. mál, Suðurlandsbraut um Krýsuvík

Bjarni Benediktsson:

Herra forseti. — Ég vil beina þeirri fyrirspurn til hæstv. forseta, hvort þess finnist nokkurt fordæmi, að slík málsmeðferð hafi verið viðhöfð. — Í öðru lagi vil ég beina því til ríkisstj., hvort hún telur sig geta farið þessa leið, þ. e. að falsa reikninga ríkisins. Væri mjög æskilegt að vita, hvort hægt er að benda á nokkurt fordæmi hliðstætt.