11.03.1944
Sameinað þing: 30. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 284 í D-deild Alþingistíðinda. (4495)

69. mál, frestun á fundum Alþingis

Forsrh. (Björn Þórðarson):

Herra forseti. — Þess þótti ekki þörf að láta till. þessari fylgja sérstaka grg. Alþ. verður kvatt saman ekki síðar en 10. júní til þess að fara með og leiða til lykta ákveðin störf, sem nú hafa verið hafin. Í till. segir, að Alþ. verði kvatt saman aftur eigi síðar en 10. júní n.k. Ef stj. telur brýna nauðsyn til bera að kveðja Alþ. saman fyrr, sem getur borið til, verður það gert. Annars þykir mér ekki þörf að fara fleiri orðum um málið.