16.02.1945
Sameinað þing: 94. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 628 í D-deild Alþingistíðinda. (5805)

284. mál, leiga á færeyskum skipum o.fl.

Jóhann Jósefsson:

Ég lít svo á, að hæstv. Alþ. hafi þegar gert þær ráðstafanir í þessu máli á lokuðum fundi, að nefndarathugun á þessu stigi málsins á málinu geti ekki haggað því, sem þar hefur fram farið, en hins vegar, að sá ágreiningur, sem upp hefur risið um framkvæmd á einstökum atriðum, sé þess eðlis, að ég treysti því, að við síðari umr. málsins muni hæstv. ríkisstj. geta mætt þeim óskum, er fram hafa komið um lipra framkvæmd að því er snertir einnig íslenzka útvegsmenn, sé ég ekki ástæðu til að vísa málinu til n. og segi því nei.