02.03.1945
Sameinað þing: 99. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 697 í D-deild Alþingistíðinda. (5871)

224. mál, virkjun Fljótaár

Samgmrh. (Emil Jónsson):

Ég hef áður lýst afstöðu minni til þessa máls og á þann veg, sem hæstv. atvmrh. hefur tekið fram, og þó að till. 1252 yrði samþ., hef ég skilið flytjendur málsins svo, að þeir séu því samþ., sem ég hef lýst yfir, að gert mundi verða, að þetta mundi framkvæmt með svipuðum hætti og till. nú er orðuð. En hvort það er samþ. í till. sjálfri eða framkvæmt á annan hátt, tel ég ekki afgerandi atriði. Mér finnst till. hv. þm. Barð. eðlileg, og hefur slíkt komið til framkvæmda við rafveituframkvæmdir og hafnargerðir.