04.12.1944
Sameinað þing: 69. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 440 í B-deild Alþingistíðinda. (588)
143. mál, fjárlög 1945
Forseti (GSv):
Þá hefur hæstv. forsrh., Ólafur Thors, lokið máli sínu. Hann talaði af hálfu stuðningsmanna stj. í Sjálfstfl.
Ég skal láta þess getið, að það, sem skakka kann á tíma milli stjórnarflokkanna og stjórnarandstæðinga á þessu kvöldi, verður jafnað á næsta kvöldi þeim í hag, sem hallann hefur beðið.
Næstur tekur til máls hv. 4. landsk. (StgrA) og talar af hálfu Sameiningarfl. alþýðu - Sósfl.