10.06.1944
Sameinað þing: 31. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 2055 í B-deild Alþingistíðinda. (6402)

Setning þings af nýju

forseti (GSv):

Ekki eru allir hv. þm. komnir til þingsetu á þessum degi, og munu koma brátt, þeir er eigi eru hindraðir meira. Tilkynning hefur komið um forföll frá þm. N.-Þ., að hann muni ekki, sakir lasleika, geta setið fundi Alþingis að þessu sinni. Sömuleiðis, að þm. V.-Húnv. og þm. Vestm. geti ekki heldur sótt þingfundi á réttum tíma. Einnig hefur hv. þm. Mýr. tilkynnt hið sama.