11.12.1944
Sameinað þing: 74. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 585 í B-deild Alþingistíðinda. (646)

143. mál, fjárlög 1945

Samgmrh. (Emil Jónsson):

Ég vil aðeins — um leið og ég vísa til grg. hæstv. forsrh. — geta þess, að strandferðamálin eru í athugun hjá nefnd, sem hefur ekki enn skilað áliti, en mun gera það bráðlega. Tel ég því óhyggilegt að slá neinu föstu um það, hvernig strandferðaskipin skuli vera, og segi nei.