19.11.1945
Neðri deild: 35. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 961 í B-deild Alþingistíðinda. (1457)

57. mál, vátryggingarfélög fyrir vélbáta

Frsm. (Jóhann Jósefsson):

Herra forseti. Sjútvn. hefur orðið ásátt um að mæla með samþykkt þessa frv. með þeim breyt., sem greinir á þskj. 163 og eru á þann veg, að framlengingin verði veitt til tveggja ára, þ. e. til ársloka 1948.