21.11.1945
Neðri deild: 36. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 962 í B-deild Alþingistíðinda. (1459)

57. mál, vátryggingarfélög fyrir vélbáta

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Mér sýnist, að þörf geti verið á því að athuga þetta litla frv. nánar, áður en það verður afgr. Í 1. gr. er ákvæði um breyt. á l. nr. 15 24. marz 1944, en í 2. gr. er sagt, að l. nr. 15 24. marz 1944 falli úr gildi, um leið og þessi öðlist gildi. Virðist því lítill árangur af því að samþ. frv. svona. Ég vildi nú beina því til sjútvn. að taka frv. til nánari athugunar og legg til, að umr. verði frestað.