27.11.1945
Neðri deild: 40. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 22 í B-deild Alþingistíðinda. (182)

91. mál, gjaldaviðauki 1946

Fjmrh. (Pétur Magnússon) :

Það er eins með þetta frv. og það, sem verið er að afgreiða (um tekjuskattsviðauka). Það er stjfrv., flutt í Ed. vegna tekna ríkissjóðs. Þær tekjur voru 1945 um 3 millj. kr., og má. gera rað fyrir, að það verði svipað 1946. — Ég leyfi mér að óska, að frv. verði vísað til hv. fjhn. að lokinni þessari umr.