15.04.1946
Neðri deild: 111. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1816 í B-deild Alþingistíðinda. (2969)

194. mál, útflutningur á afurðum bátaútvegsins

Atvmrh. (Áki Jakobsson) :

Þetta er ekki nema 2. umr. og till. samin í samráði við samtök þeirra, sem hlut eiga að máli og býst ég því varla við, að n. breyti þessu máli nokkuð verulega, auk þess sem brtt. gætu komið fram við 3. umr. frv., og mælist ég því til, að þessari umr. verði lokið núna.