27.04.1946
Efri deild: 118. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2184 í B-deild Alþingistíðinda. (3606)

Starfslok deilda

forseti (StgrA) :

Þetta verður væntanlega seinasti fundur Ed. á þessu þingi. Ég vil leita leyfis hv. dm. um, að ég og ritari fáum að ganga frá bókun tveggja seinustu funda, og skoða ég það samþ., ef enginn mælir því í gegn.

Ég vil að lokum þakka deildarmönnum fyrir gott samstarf og vil óska þeim, sem heima eiga utan bæjarins, góðrar heimferðar. Vona ég svo, að allir hv. þingdeildarmenn hittist heilir á næsta þingi.