05.11.1945
Sameinað þing: 5. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 3 í D-deild Alþingistíðinda. (3650)

67. mál, húsaleiga

Flm. (Gísli Jónsson.) :

Herra forseti. Þegar húsaleigulögin voru fyrst sett á Alþ. 1940, þá var það vegna ófriðarástands. Þessi l. standa enn, þrátt fyrir mótmæli húseigenda og þótt réttur þeirra sé fyrir borð borinn. L. var breytt á Alþ. 1943, og hér liggur fyrir brtt. um að breyta 6. gr., og er algerlega óviðunandi nema henni verði breytt. Nú er friður saminn og því grundvallaratriði laganna fallið úr gildi, og því hef ég borið fram þáltill., sem ég vona, að hæstv. Alþ. samþykki.