08.03.1946
Sameinað þing: 31. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 69 í D-deild Alþingistíðinda. (3861)

162. mál, hveraorka á Reykhólum

Frsm. (Jón Sigurðsson) :

N. hefur athugað þetta mál og leggur til, að till. eins og hún liggur fyrir verði samþ.

Ég sé ekki ástæðu til að fara að rekja þá grg., sem fylgir þessari till., og þær ástæður, sem hv. flm. gerði grein fyrir hér í Sþ., er hann reifaði málið. Það er ekki ástæða til þess að fara að endurtaka það, en ég skal aðeins taka það fram, að jafnhliða því, að n. athugaði þessa till., þá var leitað álits rafmagnseftirlits ríkisins, og það hefur tjáð sig reiðubúið til að framkvæma þær rannsóknir, sem till. fer fram á.

Ég vil svo f. h. n. mæla með því, að till. verði samþ. eins og hún liggur fyrir.