27.04.1946
Efri deild: 115. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 123 í C-deild Alþingistíðinda. (4133)

135. mál, atvinnudeild háskólans

Bjarni Benediktsson:

Út af ummælum hæstv. ráðh. um að vísa þessu máli til annarrar n.. þá vil ég segja það, að mér virðist liggja beinast við að vísa málinu til þeirrar n., sem hefur haft það til meðferðar. Það er óvenjuleg aðferð að taka nál. af n. án vitundar form. hennar, og ég vil mælast til, að hv. deild verði látin skera úr því, hvort hún telur, að n. eigi slíka hirtingu skilið.