08.03.1946
Efri deild: 80. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 561 í B-deild Alþingistíðinda. (510)
5. mál, verðlagning landbúnaðarafurða o.fl. (heildarlög)
Þorsteinn Þorsteinsson:
Þar sem atkv. mitt viðvíkjandi þessu frv. fer algerlega eftir því, hvort till. mín á þskj. 520 verður samþ. eða ekki, þá greiði ég ekki frvgr. þessari atkv. fyrr en séð er, hvernig fer um þá till., og greiði því ekki atkv.
2.–10. gr. samþ. með 9:4 atkv.
Brtt. 520 felld með 9:5 atkv.
— 511 samþ. með 11 shlj. atkv.
11. gr., svo breytt, samþ. með 9:4 atkv.
Fyrirsögn samþ. án atkv gr.
Frv. vísað til 3. umr. með 9:5 atkv.