13.12.1945
Efri deild: 48. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 644 í B-deild Alþingistíðinda. (625)

4. mál, dýrtíðarvísitala

Þorsteinn Þorsteinsson:

Þar sem þáltill, hefur verið borin fram í Sþ. um svipað efni og þessi brtt. og er nú hjá hv. allshn. Sþ. og sú n. hefur því tækifæri til þess að laga þá þáltill. með hliðsjón af þessari brtt., ef henni sýnist svo, þá tel ég óþarft að hafa tvær mþn. til þess að fjalla um sams konar efni og finnst réttara, að ein n., sem kosin er af Sþ., eins og sú þáltill. gerir ráð fyrir, fjalli um þetta mál. Segi ég því nei.